Reynir sigraði í Stóru upplestrarkeppninni

Stóra upplestrarkeppnin í Skagafirði var haldin í sal bóknámshúss Fjölbrautaskólans í gær en þar öttu kappi ellefu nemendur úr grunnskólum Skagafjarðar og lásu sögukafla og tvö ljóð. Börnin þóttu standa sig vel og voru sér og skólum sínum til mikils sóma samkvæmt heimasíðu Varmahlíðarskóla og beið dómnefndar því það erfiða hlutskipti að gera upp á milli keppenda.

Reynir Eysteinsson Grunnskólanum austan Vatna á Hólum þótti standa sig best og hlaut fyrir það fyrsta sætið, annað sætið kom í hlut Örvars Pálma Örvarssonar úr Árskóla og þriðja sætið hlaut Kristrún María Magnúsdóttir, einnig í Árskóla.

Í viðurkenningarskyni fengu allir keppendur sérprentaða ljóðabók með ljóðum Gyrðis Elíassonar frá Félagi íslenskra bókaútgefenda og verðlaunahafar að auki gjafabréf frá Eymundsson.

Fleiri fréttir