Riddarar skora fjögur lið á hólm

Annað kvöld fer fram hið árlega Áskorendamót Riddara í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki og hefst klukkan 20:00. Riddararnir hafa skorað á lið: Narfastaða, Lúlla Matt, Skörðugils og Vatnsleysu að reyna með sér í fyrirséðri spennandi keppni enda hestakosturinn góður hjá öllum liðum.

Í hverju liði eru fjórir keppendur og er hver grein  riðin af einum keppanda úr hverju liði en keppt er í fjór- og fi,,gangi, tölti og skeiði.

Í tilkynningu frá Riddurum segir að Bjarni Jónasson liðsstjóri Narfastaða og handhafi bikarsins  muni að öllum líkindum ekki láta hann af hendi baráttulaust.

Fleiri fréttir