Riðið að Reykjum
Það hefur ýmislegt skemmtilegt verið í boði að Reykjum á Reykjaströnd í sumar enda aðstaðan góð fyrir allskonar uppákomur og. Fyrir skömmu var haldið dömukvöld og á morgun er ætlunin að fá hestamenn til að ríða á Ströndina.
Lagt verður af stað klukkan 13:00 frá Reiðhöllinni á Sauðárkróki og stefnan tekin á Reykjaströndina en á Reykjum verður tekið vel á móti knöpunum.
Að sögn Helga Rafns Viggóssonar verður sjóðandi heit kjötsúpa í boði, brauð og afslöppun í Grettislaug og verðið einungis 2000kr. Þá verður kaffihúsið opið með fullt af gómsætum veitingum.