Rússneskt par veðurteppt í Fljótum - hæstánægt með upplifunina
Rússneskt par varð veðurteppt á sveitabæ í Fljótum um áramótin. Samkvæmt heimildum Rúv.is var fólkið hætt komið vegna þess að það var á ferð í vondu veðri og mikilli snjókomu en þegar upp var staðið var það hæstánægt með upplifunina.
Fólkið lagði upp á laugardag, frá Sauðárkróki til Akureyrar, meðfram ströndinni á Tröllaskaga. Samkvæmt Rúv.is fór veðrið að versna um klukkutíma eftir að það lagði af stað og þegar bóndi á svæðinu sá jeppa aka framhjá í aftakaveðri hafði hann samband við bændur á nágrannabæjunum sem fóru leita að fólkinu. Þegar bíllinn fannst hafði í tvígang legið nærri að hann færi út af veginum.
Rússneska parið gisti í tvo daga á Lambanesi-Reykjum vegna fannfergisins og ófærðarinnar. Á gamlárskvöld var parið svo ferjað á snjósleðum í áramótaveislu á Brúnastöðum. Vasily Konov er annar ferðamannanna og sagði hann í samtali við Rúv.is síðustu þrjá daga hafa verið frábæra, þau hafi notið mikillar gestrisni og hlýju. Borðað, spjallað og spilað.
Vasily sagði óveðrið hafi komið þeim í opna skjöldu því það versnaði snögglega. Þá hafi þau ekki vitað hver veðurspáin væri því þau tali ekki íslensku. En þrátt fyrir vandræðin er Vasily Konov hæstánægður með upplifunina sem hafi verið mun áhugaverðari en venjuleg túristaferð um eyjuna.