Sæluvikan 2012 er hafin

Sæluvikan var sett á atvinnulífssýningunni Lífsins gæði og gleði í gær og við tilefnið steig Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar á svið. Þar ávarpaði hún gesti sýningarinnar og setti lista- og menningarhátíð Skagfirðinga á formlegum nótum.  

Karlakórinn Heimir sá um að syngja inn Sæluvikuna við mikla hrifningu viðstaddra og flutti kórinn m.a. Skín við sólu Skagafjörður og Húrrakórinn úr Czardasfurstynjunni.

Næstu vikuna geta gestir og heimamenn notið uppskeru menningarstarfs Skagfirðinga og upplifað það sem félög og einstaklingar í héraðinu ætla að bera á borð.

Hér má skoða þá fjölbreyttu dagskrá sem er í boði í Sæluvikunni 2012.

Fleiri fréttir