Sæþór Már Íslandsmeistari í grindahlaupi
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss, fyrir 11-14 ára, fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík um sl. helgi. Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að keppendur hafi verið um 380 talsins frá 20 félögum og samböndum. Í skagfirska liðinu voru 23 keppendur og hafnaði liðið í 8. sæti í heildarstigakeppninni.
Skagfirðingar sem unnu til verðlauna:
- Sæþór Már Hinriksson (13): Sigraði í 60m grindahlaupi.
- Berglind Gunnarsdóttir (12): 2. sæti í kúluvarpi.
- Guðný Rúna Vésteinsdóttir (11): 3. sæti í kúluvarpi.
- Vala Rún Stefánsdóttir (14): 3. sæti í 60m grindahlaupi.