Safnar fyrir útigangsmenn
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, sem áður bjó á Sauðárkróki, segir frá því að dóttir hennar, Rebekka, sé byrjuð að safna fé fyrir heimilislausa og þar með að einhverju leyti að launa greiða eða gjöf sem hún fékk frá heimilislausum manni í Hagkaupsverslun og greint var frá á vefnum Innihald.is fyrr í vetur. Rebekka byrjaði á því að tæma sparibaukana sína en draumurinn er að safna a.m.k. eitt hundrað þúsund krónum.
Peningana hyggst hún gefa í Minningarsjóð Lofts Gunnarssonar, en þetta er sú upphæð sem vantar uppá til að kaupa tuttugu ný rúm, sængur, kodda og sængurföt fyrir Gistiskýlið í Reykjavík. Hennar ósk er einnig að fara niður í miðbæ og gefa sjálf útigangsfólkinu þar pening, mat og drykk, skrifar Elísabet á Innihald.is.
„Þetta er falleg hugsun hjá ekki eldra barni en 8 ára og langar okkur mæðgum að leita til ykkar með ósk um aðstoð, en stofnaður hefur verið söfnunarreikningur í hennar nafni. Reikningsnúmerið er 0322-13-189442, kennitalan er 220105-3340. Munið að margt smátt gerir eitt stórt því ef aðeins 200 manns gefa 500 krónur er draumur hennar uppfylltur.“