Sálrænn stuðningur við bændur í Skagafirði

Kristín Lind Jónsdóttir, sálfræðingur. Mynd af FB-síðu Huglindar.
Kristín Lind Jónsdóttir, sálfræðingur. Mynd af FB-síðu Huglindar.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og fulltrúar sveitarfélaga í Skagafirði hafa undirritað samkomulag við Kristínu Lindu Jónsdóttur, sálfræðing, um að veita sauðfjárbændum sálrænan stuðning og ráðgjöf vegna riðuveiki sem greinst hefur í Skagafirði. Kristín Linda er klínískur sálfræðingur og rekur eigin sálfræðistofu, Huglind ehf.

Á vef stjórnarráðsins kemur fram að í verkefninu felist að heimilisfólki á þeim búum þar sem riðuveiki hefur greinst stendur til boða að nýta sér sálfræðiþjónustu Kristínar Lindu. „Ráðgjöfin verður í boði í Skagafirði þegar aðstæður leyfa eða í gegnum fjarfundarbúnað. Auk þess hafa bændur fengið sent fræðslu- og leiðbeiningarefni sem hefur verið tekið saman um áhrif af ytri áföllum á líðan fólks og hagnýt ráð sem hafa reynst vel þegar erfiðleikar og áföll ganga yfir. Sjónum er sérstaklega beint að viðbrögðum ef riðuveiki greinist í sauðfé. Í fræðsluefninu er auk þess vikið að bjargráðum foreldra vegna upplifunar barna og ungmenna,“ segir í færslunni en Kristín Linda mun einnig sækja opinn upplýsingafund sem fyrirhugað er að halda fljótlega þar sem hún verður þáttakandi í umræðum og svara spurningum.

„Sem fyrrverandi bónda til 15 ára finnst mér sérstaklega gott að geta nýtt faglega þekkingu mína sem sálfræðingur og reynslu mína bæði sem bóndi og sálfræðingur til hjálpar. Það er alltaf mikilvægt þegar fólk verður fyrir áföllum, missi, sorg og erfiðleikum að leita sér hjálpar hjá fagfólki. Fara yfir málin og fá hagnýt, faglegt og gagnlegt samtal og ráðgjöf bæði um það sem rannsóknir sýna að reynist fólki vel í erfiðleikum og það sem er skynsamlegt að varast; bjargráð og skaðaminnkun. Gangi ykkur öllum sem best í dag í ykkar verkefnum bæði þeim sem eru krefjandi og þung og þeim sem lyfta lund og líðan - hlúum hvort að öðru,“ skrifar Kristín Lind á Facebook-síðu Huglindar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir