Saltsýra lak úr tanki á Sauðárkróki

Slökkviliðið á Sauðárkróki var kallað út um kl. 1 í nótt er vart varð við gufur sem stigu út úr gámi á hafnarsvæðinu á staðnum. Reykkafaragengi var sent inn í gáminn til að meta stöðuna og hefur nóttin farið í það að stöðva lekann. Að sögn Vernharðs Guðnasonar slökkviliðsstjóra er nú beðið eftir tækjum og efnum frá Reykjavík til að hreinsa svæðið.

Þar er verið að tala um sóda en hann hjálpar til við að breyta pH gildi sýrunnar og gerir hana hættuminni. Svæðið sem gámurinn er á, austasti hluti hafnarinnar, er lokað vegna þessa atviks en að Sögn Vernharðs er ekki talin hætta á ferðum fyrir íbúa Sauðárkróks. Vindátt er hagstæð og fara gufur, sem enn kunna að leka út, í átt til hafs. Lekinn var á afmörkuðu svæði og voru verktakar fengnir til að koma með sand til að afmarka lekann frekar, frost sem er í jörðu hjálpar einnig til að hindra sýran sígi í jörð.

Vernharð segir ekki ljóst ennþá hversu illa tankurinn sé tærður en það verði kannað nánar.

Fleiri fréttir