Samantekt frá leikjum Tindastóls í sumar
Hver getur gleymt góðum árangri Tindastólsmanna í 1. deildinni í sumar? Ekki gott að segja en víst er að þeir sem vilja rifja fótboltasumarið upp aftur og aftur gætu gert margt vitlausara en að kíkja á bráðskemmtilegt samantektarmyndband sem Stefán Arnar Ómarsson hefur sett saman.
Þar gefur að líta allt það helsta sem gerðist í leikjum Tindastóls í sumar; helling af mörkum, spjöld, tæklingar, markvörslur og dauðafæri sem fóru forgörðum – þá ekki síst færið sem Max klikkaði á gegn ÍR!
http://www.youtube.com/watch?v=f9jtL3MqeeE