Sameiginlegt lið KFÍ og Tindastóls úr leik
Stúlknaflokkur sameiginlegs liðs KFÍ og Tindastóls tók á móti liði Keflavíkur í bikarkeppni stúlknaflokks sl. sunnudag og tapaði 43-81. Þar með er sameiginlegt lið KFÍ og Tindastóls úr leik í bikarkeppni KKÍ.
Á heimasíðu Tindastóls segir að Tindastóll hafi eingöngu mannað þennan leik og að stúlkurnar frá Ísafirði hafi ekki komið í leikinn. Keflavík byrjaði gríðarlega sterkt og fyrstu stig heimastúlkna komu í stöðunni 0-25. Staðan í hálfleik var 16-41.
Við lok þriðja leikhlutans var staðan 29-61 og lokatölur eins og áður sagði 43-81.
„Stelpurnar náðu sér ekki á strik í upphafi gegn sterkri pressuvörn Keflvíkinga, en þegar þær höfðu hrist af sér hrollinn fóru þær að spila betur og börðust eins og ljón út allan leikinn,“ segir loks á heimasíðu Tindastóls.
Stigaskor: Árdís Eva 12, Bríet Lilja 11, Ólína Sif 9, Kolbrún Ósk 5, Guðlaug Rún 4 og Valdís Ósk 2.