Sameiginlegur nýársfagnaður
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla
10.01.2018
kl. 13.44
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórinn í Skagafirði ætla að slá saman og halda sameiginlegan nýársfagnað í Húnaveri næsta laugardagskvöld og byrjar gamanið klukkan 20:30. Á dagskránni verða skemmtiatriði, kvöldverður og kórsöngur og loks verður stiginn dans við undirleik Geirmundar Valtýssonar.
Hátíðin er opin utan kóranna og geta áhugasamir skráð þátttöku hjá Höskuldi í síma 894-8710, Pétri í síma 821-4349 eða hjá Valborgu í síma 869-8108.
Miðaverð er 6.000 krónur en gestir eru beðnir að athuga að enginn posi er á staðnum.
laugardaginn 13. janúar næstkomandi og hefst hann klukkan 20:30.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.