Samfés í Miðgarði annað kvöld
Undankeppni Samfés á Norðurlandi fer fram í Menningarhúsinu í Miðgarði í Varmahlíð á morgun, föstudaginn 27. janúar kl. 19-21. Hljómsveitin Úlfur Úlfur ásamt DJ Basic-B stígur á svið eftir söngvakeppnina og spila fyrir dansi til kl. 23:00.
Þrír krakkar frá Sauðárkróki munu keppa til úrslita annað kvöld, þau Bergrún Sóla Áskelsdóttir, Sunna Líf Óskarsdóttir og Daníel Logi Þorsteinsson.
Skráning fór fram hjá Húsi frítímans frá 18.-25. janúar og þurftu unglingarnir samþykki foreldra til að fá að mæta á söngvakeppnina.
Frí rútuferð verður fyrir þá sem hafa borgað sig inn á keppnina og er mæting í Hús frítímans kl. 18:00. Ballinu lýkur kl 23:00 og verður farinn skólarútuhringurinn þegar heim verður komið.
Á heimasíðu Samfés er vakin athygli á reglur Samfés um klæðaburð, þær eru eftirfarandi:
- Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
- Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
- Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
- Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum.