feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf, Lokað efni 03.06.2026
kl. 15.11 bladamadur@feykir.is
Alþingi hefur samþykkt lög sem heimila Háskóla Íslands og Háskólanum á Hólum að sameinast í háskólasamstæðu. Lögin taka gildi 1. júlí 2026 og marka stór tímamót, þar sem um er að ræða fyrstu háskólasamstæðu landsins. Með breytingunni verður Háskólinn á Hólum sjálfstæður aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum.
Í gærkvöldi var Árskóla slitið þegar 42 nemendur útskrifuðust úr skólanum. Tíundu bekkingar voru kvaddir með veitingum frá níunda bekkingum og fallegri athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Siglufjarðarvegur 76 Útblönduhlíð verður lokaður vegna ræsagerðar fimmtudaginn 4. júní 2026. Lokað verður við Syðstu Grund að sunnan en við Narfastaði að norðan.
Frá klukkan 08,00 og fram eftir degi.
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 03.06.2026
kl. 10.32 oli@feykir.is
Mikill meirihluti svarenda í könnun Öldunnar, Samstöðu og Verslunarmannafélags Skagafjarðar var hlynntur því að halda áfram samningaviðræðum félaganna varðandi sameiningu þeirra. Kosningu lauk síðastliðið sunnudagskvöld.
Ráðhús Húnabyggðar var formlega opnað fyrir síðustu helgi að vistöddum fjölda gesta. Fram kemurá heimasíðu Húnabyggðar að viðamikil dagskrá var í ráðhúsinu nýja í tilefni af opnuninni en að henni lokinni bauð sveitarfélagið íbúum í létta grillveislu og fólk gat einnig skoðað ráðhúsið og Skjólið sem er félagsmiðstöð ungmenna Húnabyggðar.
Fáir hugsa um heilbrigðiseftirlit í dagsins önn. Það er eðlilegt. Þegar allt gengur vel taka flestir ekki eftir því starfi sem unnið er á bak við tjöldin til að tryggja örugg matvæli, hreint neysluvatn og heilnæmt umhverfi.
Talsverður vöxtur er í ferðaþjónustu á Norðurlandi, einkum í vetrarferðaþjónustu, og umtalsverðar fjárfestingar yfirstandandi eða í bígerð á svæðinu. Komufarþegum til Akureyrarflugvallar fjölgaði um 9,5% á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri, þá eru vísbendingar um að erlendir ferðamenn sem heimsækja Norðurland leiti sérstaklega í annars konar afþreyingu en ferðamenn sem koma um Keflavíkurflugvöll. Fjallað var um stöðu og horfur í ferðaþjónustu á Norðurlandi á ráðstefnunni „Segjum sögur af fjárfestingum“ sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir í vikunni.
Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi í heimsókn í aðsetur sjúkraþjálfunar og endurhæfingar HSN á Sauðárkróki þann 21. maí síðastliðinn. Það er markmið félaga að láta gott af sér leiða sem víðast í samfélaginu. Gjöfin í ár eru þrjú þrekhjól, hugsuð fyrir alla þá fjölmörgu einstaklinga sem njóta þjálfunar og endurhæfingar hjá stofnuninni.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Ingvi Hrannar Ómarsson, kennari, er fæddur árið 1986, alinn upp á Króknum og sonur Maríu Bjarkar Ingvadóttur og Ómars Braga Stefánssonar. Ingvi Hrannar lærði á blokkflautu eins og svo margir en spurður um helstu tónlistarafrek segist hann hafa verið bjartasta vonin í Tónlistarskóla Skagafjarðar vorið 1992. „Reyndar held ég að það hafi ekki verið formleg kosning en ég var að verða mjög frambærilegur á blokkflautuna og hefði líklega átt að halda áfram á þeirri braut,“ segir Ingvi Hrannar fjallbrattur.