Samningur um dreifnám á Hólmavík

Fyrr í dag var sagt frá því hér á Feyki.is að undirritaður hefði verið samstarfssamningur um dreifnám í A-Hún. Í gær var einnig undirritaður slíkur samningur um dreifnám á Hólmavík. Það eru Strandabyggð og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra sem standa að því námi og fékk námið stuðning af fjárlögum fyrir árið 2013, sem fjögurra ára tilraunaverkefni.

Þar með gefst nemendum á Ströndum færi á að stunda framhaldsnám í heimabyggð og hófst námið sl. haust. Frá og með haustinu 2014 verður hægt að taka tvö fyrstu námsárin á Hólmavík.

Í tilefni af undirritun samningsins var athöfn í Hnyðju á Hólmavík og síðan opið hús hjá framhaldsdeildinni og öðrum sem aðstöðu hafa í Þróunarsetrinu á Hólmavík. Það er Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir sem er umsjónarmaður með dreifnáminu á Hólmavík.

Fyrir hönd skólans á Sauðárkróki ritaði Ingileif Oddsdóttir skólameistari Fjölbrautaskólans undir samninginn, en Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri og Jón Gísli Jónsson oddviti fyrir hönd Strandabyggðar. Erindi héldu Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir umsjónarmaður, Ingibjörg Hjartardóttir nemandi í deildinni, Ingileif Oddsdóttir skólameistari og Andrea Kr. Jónsdóttir sveitarstjóri, auk þess sem Andrea Messíana Heimisdóttir nemandi í deildinni söng fyrir gesti.

Fleiri fréttir