Samstarf við RIFF
RIFF (Reykjavík International Film Festival) verður sett á morgun og ríkir mikill spenningur fyrir hátíðinni sunnan heiða. Nú geta Sauðkrækingar einnig glaðst þar sem samkomulag hefur náðst við skipuleggjendur hátíðarinnar um að sýna þrjár kvikmyndir í Króksbíói.
Að sögn Árna Gunnarssonar hjá Skottu kvikmyndafjelagi verða myndirnar sýndar í seinni hluta næstu viku. „Ég verð viðstaddur setningu hátíðarinnar í Hörpu og tek myndirnar svo með mér norður aftur,“ segir Árni en hátíðin stendur yfir í viku. Myndirnar verða svo sýndar í Króksbíói með HD skjá sem er í eigu Skottu.
Á næsta ári er ætlunin að vera með smiðju í tengslum við kvikmyndahátíðina fyrir nemendur í kvikmyndagerð við FNV.
Þess má geta að það er einungis á tveimur stöðum utan Reykjavíkur sem sýndar verða kvikmyndir í tengslum við í RIFF, þ.e. á Sauðárkróki og Egilsstöðum.