Samstarfssamningur milli UMSS og Svf. Skagafjarðar - Áhersla lögð á barna- og unglingastarf

Mynd: Klara Helgadóttir og Ásta Pálmadóttir undirrita samstarfssamning á milli UMSS og Svf. Skagafjarðar. Mynd: PF.
Mynd: Klara Helgadóttir og Ásta Pálmadóttir undirrita samstarfssamning á milli UMSS og Svf. Skagafjarðar. Mynd: PF.

Klara Helgadóttir, formaður Ungmennasambands Skagafjarðar og Ásta B. Pálmadóttir sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar, undirrituðu sl. mánudag samstarfssamning sem ætlaður er að efla starf sambandsins og aðildarfélaga þess með megin áherslu á barna- og unglingastarf auk þess að stuðla að auknu samstarfi UMSS og sveitarfélagsins á sviði íþrótta- og forvarnamála.

Með samningnum skuldbindur sveitarfélagið sig m.a. til að styrkja UMSS um ákveðna upphæð á ári hverju sem ákveðin er í fjárhagsáætlun hvers árs og er styrkurinn eingöngu ætlaður barna- og unglingastarfi í sveitarfélaginu. Við úthlutun verður gætt jafnræðis milli drengja og stúlkna en UMSS úthlutar styrknum til aðildarfélaga eftir ákveðnum reglum.

Að sögn Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra var samþykkt í byggðaráði að veita 800 þúsund krónur aukalega til þess að fara í herferð og útbúa bækling sem afhentur verður iðkendum og kynna rétt iðkenda gagnvart mismunun, einelti og ofbeldi svo eitthvað sé nefnt.

„Ég vildi gjarna færa Arnrúnu Höllu Arnórsdóttur, fráfarandi formanni UMSS, þakklæti fyrir hennar miklu vinnu við þennan samning og annað,“ segir Ásta. Hún telur samninginn góðan fyrir alla og stuðli að markvissu starfi sambandsins enda vilji sveitarfélagsins sterkur í þá átt að skapa sterka umgjörð um íþróttastarf í héraði.

Fleiri fréttir