Sandfangarinn tilbúinn

Í dag er skiladagur sandfangarans við Sauðárkrókshöfn en Norðurtak og Krókverk hafa verið að lengja hann þennan mánuðinn. Hugsanlega getur það talist til tíðinda að verktakar skili af sér verkum á réttum tíma en Rögnvaldur Árnason hjá Norðurtaki segir að verkið hafi gengið vel, veðrið verið þeim hliðhollt og engar bilanir sem töfðu framkvæmdina.

Samhliða þessu verkefni var unnið við sjóvarnargarð á Hrauni á Skaga. Upphaflega átti hann að vera um 150 metra langur en síðar var ákveðið að lengja hann um 90 metra. Rögnvaldur segir að þeir hafi fengið viku frest á afhendingu hans til 24. mars þ.e. á morgun.

Nú þegar verkin eru afgreidd segir Rögnvaldur næstu skref að bjóða í önnur verk og nefnir sem dæmi smábátahöfnina á Króknum sem fyrirhugað er að færa sem og þær vegaframkvæmdir sem eru á döfinni hjá Vegagerðinni.

Fleiri fréttir