Sápubolti í Varmahlíð

Það var mjög góð mæting og allir skemmtu sér konunglega í sápuboltanum sem haldinn var í Varmahlíð á föstudagskvöldið í tilefni af lummudögum.

Tuttugu lítrar af sápu voru notaðir sem fengnir voru frá KS Eyri og svo mætti slökkviliðsstjórinn í Varmahlíð með brunabílinn og vökvaði vellina. Keppt var á tveimur völlum, fyrir eldri og yngri keppendur.

Myndir tók Sara Gísladóttir.

Fleiri fréttir