Sátt milli Tindastóls og Sigtryggs Arnars
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðna sem hafa orðið háværar eftir að Roburt Sallie var látinn fara frá félaginu þar sem Sigtryggur Arnar Björnsson leikmaður Tindastóls kemur við sögu. Var fullyrt á samfélagsmiðlum að hann hafi einnig verið látinn fara en nú hefur náðst full sátt og ekki um nein óleyst mál að ræða milli félagsins og hans, eins og segir í yfirlýsingunni.
"Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls harmar þær umræður sem orðið hafa um ungan og efnilegan leikmann sem Tindastóll fékk í sínar raðir fyrir tímabilið, Sigtryggs Arnars Björnssonar, og nýleg samskipti stjórnar og þjálfara við hann. Sú krafa sem gerð er til liðs í efstu deild í hópíþrótt leiðir vissulega til þess að gerðar eru ríkar kröfur til leikmanna og krefst þess að gott traust sé á milli leikmanna, þjálfara og stjórnar. Það er því ekki óalgengt að einhver málefni komi upp sem talið er þörf á að taka á í samskiptum við leikmenn, en jafnframt leiðinlegt þegar umræða verður hávær og óvægin án allra upplýsinga um málið. Ekki er ætlunin að tíunda þau atriði sem urðu þess valdandi að ákveðinn brestur kom í samstarf félagsins og Sigtryggs Arnars, en eftir skoðun á málavöxtum hefur náðst full sátt og ekki um nein óleyst mál að ræða milli félagsins og hans.“
Sigtryggur Arnar er geysilega öflugur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér í körfuboltanum og mun án efa verða öflugur í þeim leikjum sem liðið á eftir að leika í Dominos deildinni í vetur. Næstileikur Tindastóls verður hér heima nk. föstudagskvöld gegn Fjölni Grafarvogi en það lið er sæti ofar en Tindastóll með tveimur stigum meira svo ljóst er að sigur í þeim leik verður gríðarlega mikilvægur.
Allir hvattir til að mæta í Síkið og hvetja liðið til sigurs.