Sátu fastir í sandbleytu - hættur á hálendinu
Aðstoðarbeiðni barst til björgunarsveita um kl. 21:30 í gærkvöldi til að aðstoða jeppa sem sat fastur uppi á hálendi. Tveir bílar, annar frá Skagfirðingasveit á Sauðárkróki og annar frá Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð, með átta mönnum innanborðs brugðust við aðstoðarbeiðninni voru komnir að Hofsjökli, skammt frá Ingólfsskála, um miðnætti þar sem jeppinn sat fastur á kafi í sandbleytu.
Samkvæmt Haraldi Ingólfssyni formanni Skagfirðingasveitar var vandasamt fyrir björgunarsveitarmennina að komast að jeppanum þar sem hann sat fastur og þurfti að vaða út í til að ná honum upp. Aðgerðin tók á bilinu tvær til þrjár klukkustundir og voru þeir komnir til byggða um kl. 5 í morgun.
Að sögn Haraldar er mikil bleyta uppi á hálendi vegna hita sl. daga og þar að leiðandi mikið vatnsmagn í ám. Miklar hættur geta skapast þar um þessar mundir og biðlar hann til fólks að fara þar um með gát og að fara ekki út í jökulsárnar.