Sauðkrækingur í ráðherrastól
Eins og sagt hefur verið frá í fjölmiðlum í dag hefur ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks verið skipuð, en hún var kynnt á blaðamannafundi á Laugarvatni í morgun. Ljóst er að Skagfirðingur mun verma einn ráðherrastólinn næstu misseri, þar sem framsóknarmaðurinn Gunnar Bragi Sveinsson á Sauðárkróki tekur við embætti utanríkisráðherra.
Tillaga formanns Framsóknarflokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, um ráðherraskipan í nýrri ríkisstjórn, var samþykkt á fundi þingflokks Framsóknarflokksins í kvöld.
Framsóknarmenn munu fara með fjögur ráðherraembætti. Eygló Harðardóttir verður félagsmálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra. Þá verður Sigmundur Davíð forsætisráðherra.
Gunnar Bragi er fæddur á Sauðárkróki 9. Júní 1968. Foreldrar hans eru Sveinn Margeir Friðvinsson og Ingibjörg Gunnhildur Jósafatsdóttir. Gunnar Bragi er giftur Elvu Björk Guðmundsdóttur, sem einnig er frá Sauðárkróki. Þau eiga saman þrjá syni, Svein Rúnar og tvíburana Inga Sigþór og Róbert Smára. Auk þess á Elva tvo synir fyrir, þá Arnar Þór og Frímann Viktor.
Gunnar Bragi varð stúdent frá FNV 1989 og stundaði nám í atvinnulífsfræði við HÍ. Hann hefur gegnt ýmsum störfum á Sauðárkróki, m.a. verið verslunarstjóri og síðar framkvæmdastjóri Ábæjar, verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni og starfað á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga. Einnig var hann sölu- og verslunarstjóri hjá Skeljungi hf, ritstýrði héraðsfréttablaðinu Einherja, var aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997-1999 og um tíma markaðsráðgjafi hjá íslensku auglýsingastofunni. Þá hefur hann gegnt fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum heima í héraði og á landsvísu. Gunnar Bragi hefur setið á þingi fyrir Norðvestur kjördæmi síðan 2009.