Senn líður að kosningum
Senn líður að kosningum. Sem betur fer - því nú er komið að tímamótum hjá okkur Íslendingum þar sem við höfum þann valkost að kjósa breytingar til batnaðar. Þau skýru stefnumál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sett fram eru öllum í hag, ungum sem öldnum. Eitt af þeim málum er lækkun skatta.
Lækkun skatta þykir mörgum ekki vera mikilvægt mál í þessum kosningum þar sem eðlilega fer mikið fyrir stórum málum eins og úrlausn skuldavanda heimilanna og aðlöguninni að Evrópusambandinu. Það eru þó fleiri stór mál sem lækkun skatta hefur áhrif á. Heimilin í landinu hafa átt undir högg að sækja. Lán þeirra hækka vegna þess að þau eru bundin neysluvísitölu, sem hefur að hluta til verið drifin áfram af skattahækkunum núverandi ríkisstjórnar. Á sama tíma og skattahækkanir hækka lánin okkar, draga þær úr kaupgetu heimilanna og lækka lífskjör. Til lengri tíma geta þær einnig hamlað vexti hagkerfisins og þannig minnkað skatttekjur ríkisins, sem svo skilar sér í verri opinberri þjónustu – þar á meðal verra heilbrigðiskerfi. Skattahækkanir eru skammtímalausn, en eina langtímalausnin eru hóflegir skattar.
Leiðin út úr efnahagslægð er ekki skattahækkanir, heldur skattalækkanir. Finnland er skýrt dæmi um það. Fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, Esko Aho, sagði eitt sinn á viðskiptaþingi að sú aðgerð sem hafi bjargað finnska velferðarkerfinu í því hruni sem Finnar lentu í hafi verið lækkun skatta. Lækkun skatta eykur skatttekjur vegna þess að umsvif í samfélaginu aukast, atvinnulífið fær súrefni og fleira fólk fær vinnu. Lækkunin skilar sér í auknum ráðstöfunartekjum fólks og fleiri aurum í launaumslagið um hver mánaðarmót. Einnig hefur lækkunin áhrif á okkar daglegu neysluvörur, svo maður tali nú ekki um eldsneytisverðið. Skattahækkanir sem hafa verið gerðar á yfirstandandi kjörtímabili hafa hækkað skatta venjulegrar fjögurra manna fjölskyldu um milljón á ári á sama tíma og þær hafa hækkað lánin hennar í gegnum aukna verðbólgu. Ég held að flestar fjölskyldur hefðu viljað ráðstafa þessari milljón á skynsamlegri hátt en að nota hana til að bjarga gjaldþrota lánastofnunum og hækka í leiðinni eigin lán.
Skattpíning núverandi ríkisstjórnar á íslenskum almenningi virðist hafa horfið í skuggann fyrir skuldavandanum, sem flestir skynja eðlilega sem stóra málið. Ofsköttun undanfarinna ára hefur átt mikinn þátt í að leggja stóran hluta heimila á hliðina. Hún er eitt af stóru málunum.
Sara Katrín Stefánsdóttir
Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.