Síðasta umferð Íslandsmóts yngri flokka í körfubolta
Síðasta og fjórða umferð Íslandsmóts yngri flokkana er að hefjast og um næstu helgi mun 11. flokkur drengja keppa á heimavelli en 8. flokkur drengja og 8. flokkur stúlkna leggjur land undir fót.
11. flokkur drengja spilar í B-riðli og samkvæmt heimasíðu Tindastóls eru andstæðingar þeirra lið Vals, Hauka, Keflavíkur og Breiðabliks. Fyrsti leikurinn er gegn Val á laugardag og hefst hann kl. 12:30.
8. flokkur drengja spilar í D-riðli á Akranesi, en strákarnir unnu síðast E-riðilinn. Á Akranesi mæta þeir heimamönnum í ÍA og Keflavík B, Fjölnir B og Njarðvík B.
8. flokkur stúlkna spilar á heimavelli Fjölnis, í Rimaskóla í Reykjavík, á laugardag. Stelpurnar eru í B-riðli og etja þar kappi við heimastúlkur í Fjölni, Þórsara frá Akureyri og Ármenninga.
Leikjaplönin má nálgast á heimasíðu Tindastóls. Vegna þessa fjölliðamóts fellur körfuboltaskólinn niður en laugardagsæfingar yngri flokkanna og míkróboltaæfingin á sunnudagsmorguninn verða í barnaskólasalnum.