Síðasti dagur sektarlausra bókaskila
Sektarlausir dagar hafa verið á Héraðsbókasafninu á Sauðárkróki undanfarna viku og hafa syndugir lestrarhestar verið duglegir við að létta á samviskunni og komið með þær bækur sem gleymst hefur að skila. Í dag er síðasti séns á sektarlausum bókaskilum.
Bókasafnið á Sauðárkróki er opið alla vikrka daga milli klukkan 11 0g 18.
Allir eru hvattir til að nota tækifærið og kíkja yfir náttborðið og athuga hvort einhverjar eftirlegukindur leynist og koma þeim í safnið. Afgreiðslutími bókasafnsins er milli klukkan 11 og 18 alla virka daga.