Siðblindir höfðingjar dregnir fram í dagsljósið í Kakalaskála

Óttar Guðmundsson geðlæknir og Sturlungaáhugamaður  við steinaher Haugsnesbardaga. Óttar ætlar að taka Guðmund biskup fyrir og segja frá því hvernig hann þvælist inn í allar þær innanlandsdeilur sem áttu sér stað á Sturlungatímanum. Mynd af Facebook.
Óttar Guðmundsson geðlæknir og Sturlungaáhugamaður við steinaher Haugsnesbardaga. Óttar ætlar að taka Guðmund biskup fyrir og segja frá því hvernig hann þvælist inn í allar þær innanlandsdeilur sem áttu sér stað á Sturlungatímanum. Mynd af Facebook.

Næstkomandi laugardag verður haldin heilmikil dagskrá um Sturlunga í Skagafirði á vegum Kakalaskála Sigurðar Hansen á Kringlumýri. Þar munu m.a. koma fram tveir miklir Sturlungasöguritarar, þeir Einar Kárason, sem m.a. fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir aðra Sturlungabókina sína, Ofsa, árið 2008, og Óttar Guðmundsson, sem velti fyrir sér geðrænum vandamálum á þrettándu öld og skoðaði róstusamt líf Sturlunga í bók sem kom út fyrir síðustu jól.

Sigurður Hansen við opnun sýningarinnar
Á söguslóð Þórðar kakala í Kakalaskála í
Kringlumýri í Skagafirði 18. ágúst 2019.
 
Mynd: PF.

 Sigurður Hansen hefur verið ötull við að koma Sturlungasögunni til skila með sýningum og uppákomum í Kakalaskála á Kringlumýri en sá staður er staðsettur á sögusviði Haugsnesbardaga sem fram fór 19. apríl 1246. Þar var um mannskæðasta bardaga að ræða sem háður hefur verið á Íslandi fyrr og síðar þar sem Sturlungar, aðallega Eyfirðingar, undir forystu Þórðar kakala Sighvatssonar og Ásbirningar úr Skagafirði, sem Brandur Kolbeinsson stýrði, börðust upp á líf og dauða.

Í svari Skúla Sæland, sagnfræðings á Vísindavefnum um hvað Sturlungaöld hafi snúist, segir að Kolbeinn hafi haft á sjötta hundrað manna í sínu liði en Þórður kakali nærri fimm hundruð og voru það því yfir þúsund manns sem þarna börðust og tíundi hver féll, eða yfir eitt hundrað manns.

Einar Kárason er mikill Sturlungaáhugamaður
og hér heldur hann tölu við opnun sýningar
1238 á Sauðárkróki 2019. Mynd: PF.
 

 

Skúli fer ýtarlega yfir Sturlungaöldina sem hann segir í raun einungis hafa spannað 42-44 ára tímabil á miðri 13. öld og hafi verið einn ofbeldisfyllsti tími Íslandssögunnar. „Sturlungaöldin einkenndist af liðssafnaði valdamikilla höfðingja sem herjuðu hverjir á aðra með vígaferlum og gripdeildum. Sturlungaöldin dregur nafn sitt af Sturlungunum sem voru valdamesta ættin á Íslandi á þessu tímabili. Við lok Sturlungaaldarinnar komst landið undir erlend yfirráð og við það lauk þjóðveldistímanum sem hófst við landnámið.

Skagfirðingurinn Jóhannes Geir málaði magnaðar
myndir sem fanga marga afdrifaríka viðburði
Sturlungasögu. Hér eru kappar á leið í
Örlygsstaðabardaga 1238. Mynd af netinu.

Almennt er miðað við árið 1220 sem upphafsár Sturlungaaldarinnar því þá fer fyrst að gæta tilrauna Hákonar gamla Noregskonungs til að leggja Ísland undir norsku krúnuna. Honum tókst svo ætlunarverk sitt á árunum 1262-64 og þar með lauk Sturlungaöldinni,“ skrifar Skúli.

Margir fleiri og afdrifaríkir atburðir gerðust í Skagafirði og má nefna Örlygsstaðabardaga 21. ágúst 1238 og Flugumýrarbrennu 22. október 1253, sem einmitt er viðfangsefni Einars Kárasonar í Ofsa.

Jóhanna Þórhallsdóttir er mikil listakona,
og ætlar að syngja Heyr himnasmiður
á laugardaginn kemur. Mynd af Facebook.
 

„Þeir Einar Kárason og Óttar Guðmundsson ætla að koma og fjalla um sitthvað um Sturlungu í Skagafirði. Það er meiningin að þetta standi frá klukkan eitt til fjögur á laugardaginn, 16. október,“ segir Sigurður Hansen. „Einar ætlar að fjalla um Sturlungu í Skagafirði og Óttar Guðmundsson ætlar að tala um Guðmund biskup, Guðmund góða, og kannski í tilefni af því að 800 ár eru frá því hann hraktist frá Hólum og út í Málmey. Hann líklega fjallar um það ásamt einhverju fleiru og ég vona að þarna verði talsvert miklar umræður um þetta. Síðan ætlar Jóhanna Þórhallsdóttir að syngja Heyr himnasmiður og Stefán R. Gíslason ætlar að sjá okkur fyrir einhverju efni og svo verða kaffiveitingar í hléi. Þetta er nú svona beinagrindin að þessu,“ segir Sigurður sem vonast til þess að fólk láti sjá sig í Kakalaskála. „Ég býst við að þarna verði skemmtilegar umræður.“

Í Feyki vikunnar má lesa nánar um viðfangsefnið, m.a. viðtal við Einar Kárason, Óttar Guðmundsson og Jóhönnu Þórhallsdóttur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir