Sigurjón kærir meirihlutann

Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra í sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar hefur kært meirihlutann fyrir að halda gögnum frá kjörnum fulltrúum og brjóta 28. grein sveitarstjórnarlaga sem segir að sérhver sveitarstjórnarmaður eigi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélags og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn.

„ Það er búið að halda frá okkur gögnum sem viðkemur nýbyggingu við Árskóla,“ segir Sigurjón en að hans mati getur þetta leynimakk ekki þjónað hagsmunum íbúa héraðsins. „Við höfum ekki fengið upplýsingar um málið þótt við höfum farið fram á það á fundum og svo eigum við að taka einhverjar ákvarðanir á sveitarstjórnarfundi í dag. Þetta sýnir einhver annarleg viðhorf hjá hjá þeim sem halda um stjórnartaumana,“ segir Sigurjón ómyrkur í máli.

Sveitarstjórnarfundur verður haldinn í dag og má búast við að hart verði tekist á um málið.

Fleiri fréttir