Sigurjón Þórðarson meðmæltur pylsuvagni við sundlaugina á Hofsósi
-Litlu málin í sveitarstjórn Skagafjarðar geta orðið stór. Einhverra hluta vegna er ekki vilji hjá skipulags- og byggingarnefnd að veita tímabundið stöðuleyfi fyrir pylsuvagn á Hofsósi, við nýju sundlaugina,, segir Sigurjón Þórðarson aðspurður um bókun hans á sveitarstjórnarfundi í vikunni þegar verið var að afgreiða umsóknina.
-Það lá við að Framsóknarflokkurinn klofnaði í málinu en fulltrúi flokksins sem búsettur er Austan Vatna, tók efnislega undir þau sjónarmið sem fram komu í bókuninni segir Sigurjón en bókunin var eftirfarandi:
"Lagt er til að skipulags- og byggingarnefnd taki málið aftur á dagskrá og veiti ungu athafnarkonunum sem sækja um stöðuleyfi fyrir pylsuvagninn á Hofsósi, þann stað sem þær óska sér helst þ.e. fyrir norðan sundlaugina á Hofsósi en þar er helst að vænta að viðskiptin blómgist".