Sigurvegarar í Lífshlaupinu
Nemendur Varmahlíðarskóla sigruðu í sínum flokki í grunnskólakeppni Lífshlaupsins, en þetta er í fyrsta skiptið sem skólinn tekur þátt í keppninni. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningaverkefni á vegum Embættis Landlæknis.
Í tvær vikur skráðu nemendur alla þá hreyfingu sem þeir gerðu á hverjum degi og má sjá ítarlegar upplýsingar um hreyfingu nemenda á lifshlaupid.is. Eins og sést á sundurliðun aðgerða, sátu krakkarnir ekki aðgerðarlausir þessa daga. Einnig tók starfsfólk skólans þátt í keppni milli vinnustaða og stóð sig með ágætum þó ekki hafi hópurinn náð eins langt og nemendurnir!
Þess má geta að á heimasíðu Lífslaupsins skráð sína daglegu hreyfingu án þess að taka þátt í keppni. Sú skráning er í gildi allan ársins hring. /ÁÓ