Sigvaldi söng sig í fyrsta sætið
Föstudaginn 8. febrúar fór fram Söngkeppni NFNV í sal skólans við mikinn fögnuð áheyrenda. Þátttakendur voru níu talsins, sex stúlkur og þrír piltar. Eftir hlé steig á svið hinn landskunni Ingó veðurguð við mikinn fögnuð yngstu áheyrendanna sem sátu á fremsta bekk og tóku undir í lögum hans sem og aðrir í salnum.
Sigvaldi, Beggó og Inga Margrét, sigurvegarar kvöldsins.
Þar á eftir komu nemendur úr 9. og 10. bekk Varmahlíðarskóla og sungu syrpu af lögum úr söngleiknum Greace eða Koppafeiti sem þau fluttu á árshátíð Varmahlíðarskóla 14. des. á síðasta ári.
En úrslit söngkeppninnar fór á þann veg sem hér segir:
- 3. sæti Bergþór Pálmason
- 2. sæti Inga Margrét Jónsdóttir
- 1. sæti Sigvaldi Helgi Gunnarsson
Dómarar voru: Geirmundur Valtýsson, Helga Rós Indriðadóttir og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson
Texti og myndatökur: MHÞ Varmahlíð.