Sirkus Voltivóila á Hvammstanga

Krakkarnir í hestafimleikum hjá Hestamannafélaginu Þyt Húnaþingi vestra bjóða öllum áhugasömum í sirkusinn sinn, Voltivóila, á sunnudaginn kemur, kl. 15 í Reiðhöllinni á Hvammstanga.

Þar verða sýnd fjölbreytt atriði til skemmtunar fyrir bæði börn og fullorðna. Hvetja þau alla til að koma og njóta skemmtilegrar stundar og láta sirkusandann töfra sig í annan heim. Aðgangur er ókeypis og eru allir boðnir velkomnir.

Fleiri fréttir