„Sjóræningjarnir hafa skapað sér sess í hjörtum barna“ - Síðasta sýningarhelgi Gulleyjunnar

Um næstu helgi verður Gulleyjan sýnd í síðasta sinn hjá Leikfélagi Akureyrar en frumsýnt var í lok janúar og sýnt hefur verið á fullum krafti síðan. „Um er að ræða sannkallaða fjölskyldusýningu því að ungir jafnt sem aldnir hafa hópast í Samkomuhúsið til að upplifa sjóræningjana um borð í Hispanjólu syngja og leika,“ segir í fréttatilkynningu frá leikfélaginu. 

Upphaflega stóð til að hætta sýningum 21. mars en vegna mikillar aðsóknar var ákveðið að lengja sýningartímabilið heilan mánuð. Sýningarnar verða því 45 talsins á 12 vikna tímabili þegar yfir lýkur, samkvæmt fréttatilkynningu.

Auk hefðbundinna sýninga hafa verið ýmsir aðrir viðburðir í kringum Gulleyjuna og má þar nefna þegar Leikfélag Akureyrar bauð á fimmta hundrað grunnskóla- og leikskólabörnum í heimsókn sýningartímabilinu. Þar fengu þau að fara inn í leikmynd Gulleyjunnar, þeim sýnt baksviðs og hinum ýmsu leikhústöfrum verið uppljóstrað.

Einnig hélt LA nýlega Gulleyju ævintýramorgunn þar sem börnum var boðið að koma og eiga góða stund með sjóræningjunum.  Leikfélagið hefur oft haldið slíka morgna og hafa þeir alltaf verið vinsælir, segir í fréttatilkynningu, en greinilegt var að sjóræningjarnir hafa skapað sér sess í hjörtum barna á svæðinu því aldrei hafa jafn margir lagt leið sína eins og í þetta sinn. Salur Samkomuhússins troðfylltist og langur biðlisti myndaðist.

Síðast en ekki síst má nefna að vegna Gulleyjunnar hafa sjóræningjafánar verið áberandi á flaggstöngum Akureyringa sem hafa dregið fána á hún sjóræningjunum til heiðurs.  Sérstaklega hvatti leikfélagið bæjarbúa til að flagga um frumsýningarhelgina og þegar fimmþúsundasti gesturinn kom á sýninguna í byrjum mars.“

Leikfélag Akureyrar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa tekið þátt í Gulleyjuævintýrinu með þeim þar meðtaldir eru samstarfsaðilar þeirra úr Borgarleikhúsinu, styrktaraðilar sem og listamenn og aðrir aðstandendur sýningarinnar.  „Síðast en ekki síst skal leikhúsgestum þakkað fyrir vægast sagt stórkostlegar viðtökur.“

 

Fleiri fréttir