Skagafjarðarrallið hefst í kvöld
Bílaklúbbur Skagafjarðar stendur fyrir rallíkeppni um helgina en fyrsti bíll verður ræstur frá plani Vörumiðlunar klukkan 19:00 í kvöld. Fyrsta sérleið verður ekin um Þverárfjall en hún hefur ekki verið keyrð í Skagafjarðarrallinu í fjölda ára.
Sérleiðir dagsins verða auk Þverárfjalls, ný leið um Laxárdal og Sauðárkrókshöfn. Til að áhorfendur geti fylgst sem best með keppninni um höfnina hefur verið bent á að fólk hefur góða yfirsýn af Nöfum fyrir ofan olíutankana.
Á morgun verður eknar sérleiðir um Mælifellsdal en þar hefur oft verið rallað og ætíð mikið gengið á. Ný leið verður reynd um Vesturdal í fyrrum Lýtingsstaðarhreppi og að endingu um Nafir fyrir ofan Sauðarkrók en sú leið verður gestakóaraleið þar sem gestir fá að sitja við hlið ökumanna. Endamark verður á plani Vörumiðlunar um kl. 15:10 en um kvöldið verður verðlaunaafhending og svo matur og ball á eftir á Mælifelli.
Þrjár skagfirskar áhafnir munu taka þátt í rallinu: Þórður Ingvason og Björn Ingi Björnsson en þeir aka á Subaru Impreza, Baldur Haraldsson ekur einnig Subaru Imprez og Aðalsteinn Símonarson frá Borgarnesi mun aðstoða hann og að endingu verður Brynjar Sverrir Guðmundsson aðstoðarökumaður hjá Sigurði Arnari Pálssyni.
Tímaáætlun má nálgast HÉR
Rásröð er hægt að nálgast HÉR