Skagafjörður fær ekki dagsektir

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að falla frá áformum um álagningu dagsekta á Sveitarfélagið Skagafjörð og staðfesti í gær að eftirfylgni vegna þeirra frávika sem komu fram við eftirlit árið 2011 séu nú lokið.

Á heimasíðu Umhverfisstofnunar kemur fram að stofnunin áformaði í mars sl. að leggja dagsektir á Sveitarfélagið Skagafjörð vegna sjö frávika frá kröfum sem gerðar eru til urðunarstaða.

Þær kröfur sem Umhverfisstofnun gerði voru m.a. að uppfylla kröfur um jarðfræðilegan tálma og botnþéttingu. Heppilegra þótti að loka urðunarstaðnum á Skarðsmóum og koma urðun sláturúrgangs í annan farveg frekar en að leggja í framkvæmdir og tilkostnað.

Áætlun sveitarfélagsins um að hætta urðun á Skarðsmóum frá 1. október 2012 var samþykkt af Umhverfisstofnun í bréfi dagsettu 10. maí 2012 og þann 3. október sl. barst Umhverfisstofnun lokunaráætlun vegna urðunarstaðarins á Skarðsmóum, ásamt staðfestingu frá sveitarstjóra um að urðun þar hafi verið hætt og sláturúrgangi sé nú ekið til urðunar í Stekkjarvík.

„Umhverfisstofnun vill þakka Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir góða samvinnu við úrlausn þessa máls og hrósa Skagfirðingum fyrir ábyrga afstöðu í úrgangsmálum,“ segir loks í frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Fleiri fréttir