Skagfirðingakvöld á Spot um næstu helgi
Laugardaginn 3. mars verður haldið hið árlega Skagfirðingakvöld á Spot skemmtistað í Kópavogi en þar munu koma fram hljómsveitin VON og Hreimur, Spútnik og Telma, Úlfur, úlfur, Hljómsveit kvöldsins sem stóð sig frábærlega í fyrra, Lame Dudes og Draugarnir sem verða með „kombakk" í fyrsta skipti í 20 ár.
Kristinn Kristjánsson betur þekktur sem Kiddi Ká er einn þeirra sem standa að Skagfirðingakvöldunum og er hann viss um góða stemningu um helgina.
„Hið árlega Skagfirðingakvöld er alltaf haldið fyrstu helgina í mars og er þetta ellefta árið í röð. Við höfum reynt að hafa dagsskrána sem fjölbreyttasta og tjalda til öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt. Kvöldið á að vera eitt allsherjar "festival", og það hefur tekist hingað til“, segir Kiddi en hann fullyrðir að eitthvað verði fyrir alla á kvöldinu, kombakk frá gömlum hljómsveitum o.fl. Gestum hefur fjölgað ár frá ári en í fyrra mættu rúmlega 900 manns, „geri aðrir betur“, segir Kiddi.
„Þetta byrjaði upphaflega sem hugmynd frá honum Kristjáni Gísla og var haldið í fyrsta skipti á Players í Kópvogi árið 2001. Honum fannst vanta einhvers konar átthagamót fyrir Skagfirðinga hér á höfuðborgarsvæðinu, fyrir brottflutta sem og eftirlifendur (þá sem enn búa í Skagafirði) og langaði líka til þess að skapa vetfang fyrir skagfirska tónlistamenn. Ég hvet Skagfirðinga og nærsveitarmenn til að fjölmenna, það er ekki á hverjum degi sem maður sér, Gústa Kára og Óla "katt" saman á balli“.