Skagfirðingar í Útsvarinu í kvöld

Í kvöld munu Skagfirðingar etja kappi við lið Hornfirðinga í Útsvarinu í beinni útsendingu í Sjónvarpinu en Norðlendingarnir komust áfram sem eitt af stigahæstu tapliðunum. Það var Fjarðabyggð sem gerði sér lítið fyrir og sigraði Skagfirðinga í nóvember sl. með 106 stigum gegn 71.

Þau Guðný Zoëga, Guðrún Rögnvaldardóttir og Sveinn Margeirsson stóðu sig vel þrátt fyrir tapí það skiptið og verða þau til alls líkleg í kvöld. Það er því óhætt að hvetja alla til að setjast fyrir framan imbann klukkan 20:20 í kvöld og senda góða strauma til liðsins.

Fleiri fréttir