Skagfirðingar keppa í undanúrslitum Útsvarsins í kvöld

Fulltrúar Skagafjarðar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna, mæta í kvöld liði Fjarðabyggðar í undanúrslitum keppninnar. Sigurvegari í viðureign kvöldsins mætir liði Reykjavíkur í úrslitaþætti Útsvarsins eftir viku.

Þetta er í annað sinn sem þau Guðný, Guðrún og Sveinn mæta liði Fjarðabyggðar en Skagfirðingar biðu nauman ósigur fyrir Austfirðingunum í fyrstu umferð keppninnar en komust þá áfram sem eitt af stigahæstu tapliðunum. En síðan þá hafa Skagfirðingar hafa verið á óslitinni sigurgöngu síðan.

Áfram Skagafjörður!

Fleiri fréttir