Skagfirðingarnir í Júróinu í kvöld

Þá er komið að úrslitrakeppni Evrovision en í kvöld verða flutt þau sjö lög sem komust áfram í undanúrslitum og verða þau flutt í sömu röð og í undanúrslitum. Það þýðir að Magni Ásgeirsson stígur fyrstur á svið með lagið Ekki líta undan en Skagfirðingarnir þau Svavar Knútur og Hreindís Ylva verða númer tvö. 

Samanlögð atkvæði úr símakosningu og mat dómnefndar mun skera úr um efstu tvö sætin. Þá verða þau tvö lög flutt aftur og svo kosið aftur þeirra á milli. Símakosningin ræður úrslitum um hvort lagið verður framlag Íslands til Eurovision í Svíþjóð í maí. Þau Svavar Knútur og Hreindís Ylva komust áfram með lagið Lífið snýst eftir Hallgrím Óskarsson. Feykir sendi Hreindísi Ylfu nokkrar spurningar og birti í blaðinu í síðustu viku, áður en forkeppnin fór fram og byrjaði á því að spyrja hvernig hún tengi sig við Skagafjörð.

-Mamma mín er fædd og uppalin á Sauðárkróki, dóttir Erlu Gígju og Ninna. Ég var mikið á Króknum sem krakki og heimsæki ömmu og afa enn eins oft og ég get, en skiptunum hefur því miður fækkað eftir að ég flutti erlendis í nám. Ég hef sungið helling á Króknum, í dægurlagakeppnum í Sæluviku og þá alltaf lög eftir ömmu og hef tekið þátt í að setja upp m.a. 17. júní skemmtun í íþróttahúsinu og tekið þátt í ýmsum viðburðum á Króknum og þekki mikið af duglegu hæfileikafólki sem er gaman að koma og vinna með.

Nú er þetta í annað sinn sem þú tekur þátt í Eurovision keppninni, er skemmtilegt að taka þátt í þessu?

-Já, þetta er rosalega skemmtileg keppni. Maður hittir margt skemmtilegt fólk og fær að taka þátt í að koma nýrri íslenskri tónlist út til þjóðarinnar svo það er ekki hægt að biðja um mikið meira. Svo er ég líka mikil Eurovision manneskja og finnst æðislegt að vera í miðri hringiðunni sjálf.

Keppnin er með breyttu fyrirkomulagi í ár, hvernig líst þér á það?

-Mér líst bara ljómandi vel á það. Ekkert að því að breyta til annað slagið og prófa eitthvað nýtt. Þetta er mjög þétt og spennandi ferli núna, rétt rúmlega vika, á móti fimm til sex vikum sem ferlið tók frá fyrsta þætti þangað til framlagið var valið síðast þegar ég tók þátt

 

Hvað getur þú sagt okkur um lagið?

-Lagið er eftir Hallgrím Óskarsson, sem er alveg frábær lagahöfundur, samdi m.a. framlag Íslands til Eurovision 2003, þegar Birgitta Haukdal endaði í 8. sæti. Það heitir Lífið snýst og er skemmtilegt lag um að njóta alls þess sem er í kringum okkur í stað þess að einblína á allt það erfiða og það sem miður fer.

Hvað er verið að gera þessa dagana fyrir utan Júróið?

-Þessa dagana er ég að pródúsera stuttmynd í tengslum við leiklistarnámið mitt við Guildford School of Acting í Englandi en við höfum aldeilis verið sett utan við þægindasvið okkar því auk þess að leika í myndunum gerum við allt sjálf í fimm manna hópum, skrifum handrit, leikstýrum, framleiðum, hönnum lýsingu, stjórnum myndatöku, klippum, veljum tónlist o.s.frv. Sem framleiðandi er ég búin að standa á haus í undirbúningi og skipulagi en við fengum viku til að skrifa handrit og undirbúa tökudagana. Ég verð svo í tökum bókstaflega þangað til ég flýg heim til Íslands til að taka þátt í Söngvakeppninni og fer beint út aftur til að klippa myndina svo það er nóg að gera.

Hvert er uppáhalds Eurovision lagið þitt?

-Ég er mikil Eurovision kona svo ég á alveg nokkur uppáhalds og skipti mjög reglulega um uppáhalds Eurovision lag. En framlag Króatíu árið 1998, Neka Mi Ne Svane, hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi og er yfirleitt efst á listanum. Svo eru All Out of Luck með Selmu 1999, ítalska lagið Non ho l'etá frá 1964, Nei eða já með Siggu og Sissu frá 1992 og Fångad av en stormvind sem vann fyrir Svía 1991 góð dæmi um lög sem ég held upp á.

Feykir óskar þeim Hreindísi Ylfu og Svavari Knúti góðs gengis í keppninni og hvetur alla landsmenn til að vera þeim hliðholl í atkvæðagreiðslunni enda þeirra framlag vel til fallið að fara áfram í aðalkeppnina.

 

Fleiri fréttir