Skagfirsk sveifla í Síkinu
Tindastólsmenn mörðu baráttuglaða Njarðvíkinga í Síkinu í kvöld en gestirnir þurftu að sigra heimamenn með yfir átta stiga mun til að stela af þeim sjöunda sætinu í Iceland Express deildinni. Njarðvíkingar gerðu ágæta atlögu en þegar upp var staðið höfðu heimamenn betur, Miller tók leikinn í sínar hendur á lokakaflanum og staldraði oft við á vítalínunni. Lokatölur 81-79.
Leikurinn byrjaði fjörlega og bæði lið sjóðheit, þó sérstaklega Allen og Miller hjá Stólunum og Cameron Echols var ólseigur hjá gestunum. Upp úr miðjum fyrsta leikhluta hljóp hinsvegar mikið stuð í heimamenn sem spiluðu glimrandi flottan körfubolta fram undir miðjan annan leikhluta, breyttu þá stöðunni úr 13-12 í 41-24. Þá skyndilega dó á liðinu, Njarðvíkingar stigu upp í vörninni og Stólarnir voru kærulausir í sóknaraðgerðum sínum, Bárður hvíldi lykilmenn en þegar þeim var hent inná aftur voru þeir ekki að finna sig. Njarðvíkingar minnkuðu muninn á meðan Stólarnir skoruðu ekki eitt einasta stig síðustu 4 og hálfa mínútu annars leikhluta. Staðan 43-38 í hálfleik.
Rikki og Miller gerðu fyrstu körfurnar í þriðja leikhluta en Stólunum tókst ekki að hrista gestina af sér. Elvar Már Friðriksson var flottur hjá gestunum og nú kviknaði líka örlítið á Travis Holmes sem aðeins hafði gert eina körfu fyrir Njarðvíkinga í fyrri hálfleik. Þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af þriðja leikhluta jöfnuðu Njarðvíkingar með körfu frá Echols, Helgi Rafn skilaði niður körfu fyrir Tindastól en Elvar Már setti niður þrist og kom gestunum yfir, 56-57, og næstu 6 stig komu frá Njarðvíkingum sem skyndilegu leiddu 56-63, og Tindastólsmenn alveg úti á þekju.
Staðan þegar fjórði leikhluti hófst var 58-64 og ef Stólarnir hertu sig ekki var útlit fyrir að Njarðvíkingar stælu sjöunda sætinu í deildinni. Strákarnir sýndu góðan karakter og skelltu í lás í vörninni, nú voru það Njarðvíkingar sem fundu ekki körfuna, skoruðu ekki fyrstu þrjár og hálfa mínútu leikhlutans, og á meðan komust Stólarnir yfir, Hreinsi potaði niður öðru vítaskoti sínu og staðan 65-64. Nú náðu heimamenn frumkvæðinu og voru skynsamir í sókninni en Njarðvíkingar gáfu þó lítið eftir. Þröstur Leó braust í gegnum vörn Njarðvíkinga og lagði boltann í körfuna og bætti síðan við einu víti. Síðustu fjórar mínúturnar náðu Njarðvíkingar aldrei að komast yfir en munurinn á liðunum alltaf 1-3 stig. Þegar 13 sekúndur voru eftir brutu Njarðvíkingar á Miller í stöðunni 77-76 og Miller lagaði stöðuna í 79-76. Gestirnir tóku leikhlé og reyndu síðan að finna færi fyrir utan 3ja stiga línuna og það hafðist, Holmes setti niður úr vinstra horninu og jafnaði leikinn. Stólarnir tóku leikhlé og Miller fékk síðan boltann og sótti að körfu Njarðvíkinga sem brutu á honum þegar 0,45 sekúndur voru eftir og Miller kláraði leikinn af öryggi með tveimur vítaskotum. Lokatölur 81-79.
Leikurinn var frekar sveiflukenndur. Stólarnir spiluðu á kafla í fyrri hálfleik frábæran körfubolta og Miller og Allen, sem voru bestir í liði Tindastóls, voru sjóðheitir. Síðan gekk hvorki né rak hjá þeim og þá steig Þröstur Leó upp og setti niður mikilvægar körfur. Ivan Tratnik og Helgi Margeirs voru fjarri góðu gamni í kvöld og dró því talsvert úr breiddinni í liði Tindastóls. Hjá gestunum voru Echols og Elvar Már góðir en Holmes var ekki áberandi og Baginski, sem var bestur gestanna í bikarleik hér fyrr á árinu, fann sig heldur ekki.
Með sigrinum tryggðu Stólarnir sér sjöunda sætið í deildinni og leika við KR í úrslitakeppninni. Áfram Tindastóll!
Stig Tindastóls: Miller 31 / 6 fráköst, Allen 18 stig (öll í fyrri hálfleik) / 9 fráköst, Þröstu Leó 11, Rikki 7, Helgi Rafn 7, Svavar 4 og Hreinsi 3.