Skagfirska Sveiflan í jólaskapi!

Fröken Fabjúlöss er svo sannarlega komin í jólaskap og búin að vera það seinasta mánuð eða svo. Jólaljósin eru komin upp og jólatónlistin svífur yfir vötnum á meðan smákökur eru bakaðar í gámavís.

Frökenin gerir fátt betra en að hlusta á góða jólatónlist, og finnst alveg óttalega vingjarnlegt að heyra ný jólalög. Í haust fór henni að berast það til eyrna að skagfirski sveiflukonungurinn Geirmundur Valtýsson væri að gefa út jólaplötu þetta árið og kviknaði forvitni Fab með það sama! Eftir langa bið er platan komin út og hefur hún fengið að rúlla í tækinu á meðan bakstur fer fram þetta árið.

Ekki er annað hægt að segja en að jólagírinn sé alskagfirskur á plötunni hans Geira, og hríslast um hjarta Fab ákveðin gerð af hlýju, sú gerð er Frökenin kýs að kalla hina Skagfirsku ættFjarðarást!

Geirmundur hafði greinilega samband við landslið íslenskar tónlistarmanna við gerð þessarar plötu og eru þau alveg kyngimögnuð sem syngja með honum. Í broddi fylkingar má nefna jólakúluna Helgu Möller sem hefur raulað nokkur jólalögin inn í ódauðleika í gegnum tíðina, Pál Rósinkrans og Sigríði Beinteinsdóttur sem ber ábyrgð á nokkrum ansi fallegum jólatónum! Í flestum lögum plötunnar má finna hina alræmdu sveiflu sem Geirmundur er þekktastur fyrir og þurfti Frökenin ekki að hlusta lengi áður en yfirgnæfandi þörf til að stíga dans hafði heltekið hana. Þó svo að flestöll lögin séu alveg stórskemmtileg og hafa í raun alveg sérstaka þýðingu fyrir hverja þá manneskju sem á einhvernhátt hefur Skagfirskar rætur, þá eru þau 3 lögin sem eru í uppáhaldi Fröken Fabjúlöss:

1. Hvað viltu fá í Jólagjöf?

Þetta lag syngja þau Helga Möller og Geirmundur saman í alskagfirsku stuði! Þetta lag er eitt af þessum lögum sem heyrast einusinni og fólk er raulandi það í viku á eftir, en mjög skemmtilegt!

2. Jólaljós

Þetta lag er einstaklega falleg jólaballaða sungin af Helgu Möller og féll Fröken Fabjúlöss strax fyrir þessu lagi. Miklar líkur eru á því að þetta lag komi til með að hljóma yfir aðventuna í framtíðinni!

3. Jólastelpurnar

Þetta lag er svo krúttlegt og sætt að Fröken Fabjúlöss var smámælt í viku eftir að hafa hlustað á það! Geirmundiur fékk fallegu afastelpurnar sínar til að syngja þetta lag fyrir sig og gera þær það lystilega fallega og vel! Hann Geirmundur má svo sannarlega vera stoltur af þeim og augljóst að tónlistargenið hefur gengið áfram frá honum!

Geirmundur má vera ánægður með jólaplötuna sína, þar sem Fröken Fabjúlöss veit það fyrir víst að aðrir Skagfirðingar eru það! Mun sveiflukonungurinn halda tvenna útgáfutónleika þann 8. desember í Miðgarði, fyrri tónleikarnir byrja kl 18 og seinni kl 20:30, og mun það einvalalið söngvara sem syngur á plötunni stíga á stokk með Geirmundi. Forsala miða er í Tískuhúsinu, N1 á Sauðárkóki og í KS Varmahlíð.

Við hérna í heimshorni Fabjúlössmans erum sammála því eftir nokkur rennerí á disknum að hann er hin skemmtilegasta viðbót í íslenska jólalagaflóru, lífgar upp á aðventunna og hefur sérstaka þýðingu fyrir alla þá Skagfirðinga sem dansa eftir hinni alkunnu Skagfirsku sveiflu!

Fleiri fréttir