Skagfirskar konur fræðast um það sem máli skiptir

Í dag stóð Farskólinn fyrir skemmtilegu námskeiði sem er sérstaklega ætlað konum og ber yfirskriftina „Það sem skiptir máli.“ Á námskeiðinu fjallaði Sigríður Ævarsdóttir um það sem konur þurfa að kunna skil á til að viðhalda góðri heilsu, vellíðan og eðlilegum þroska.

Mataræði, ofnæmi/óþol, íslensk ofurfæða, fyrra og seinna breytingarskeið, börn með greiningu, aukaefni, eiturefni og mengun í umhverfi og mat, skjaldkirtilsvanvirkni týpa 2, vefjagigt, ofþyngd, þunglyndi sem og viska, ábyrgð og áhrifamáttur kvenna á nýrri öld var meðal þess sem hún kom inn á. Sigríður sem er hómópati, bóndi, seiðkona, listakona og jarðmóðir er búsett í Borgarfirði og hefur skrifað fjölda greina og haldið fyrirlestra um heilsu, en þetta er fyrsta námskeiðið af þessu tagi sem hún heldur. Auk ofangreindra umfjöllunarefna bauð Sigríður upp á smökkun á tveimur tegundum íslenskrar ofurfæðu beint frá býli og leiðbeindi um gerð þeirra.

Fleiri fréttir