Skagfirski kammerkórinn syngur vorið inn í dag

Skagfirski kammerkórinn ætlar að syngja vorið inn í dag sumardaginn fyrsta. Tónleikarnir fara fram í Kakalaskála í Kringlumýri í Blönduhlíð kl. 16:00 og síðar um kvöldið verða haldnir aðrir tónleikar í Blönduóskirkju kl. 20:30. Feykir hafði samband við Helgu Rós Indriðadóttur sem tók nýverið við kórstjórn og spurði hana nánar um tónleikana.

Við völdum óhefðbundinn stað fyrir tónleikana okkar en Siggi á Kringlumýri lofar góðum hljómburði í Kakalaskálanum. Ég efast ekki um að það mun hljóma vel í timburklæðningunni. Um kvöldið verðum við síðan í Blönduóskirkju,“ segir Helga Rós.

Kórnum langaði að fagna sumri til tilefni af sumardeginum fyrsta og munu tónleikarnir því bera yfirskriftina „Sólskin um mýrar og móa“ og verður efnisskráin eftir því. „Vor, vor og aftur vor. Við ætlum að syngja vorið til okkar enda þráin sterk eftir vori þegar dagarnir eru orðnir svona langir,“ bætir Helga Rós við. Á eftir tónleikana verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Helga Rós segir æfingar hafa gengið vel frá því hún tók við kórstjórn, hún sé með ágætlega skipað í raddir og að það hefur heldur fjölgað í kórnum. „Lögin og raddsetningarnar eru mörg mjög krefjandi og það er alltaf gaman þegar fólk er áhugasamt og leggur sig fram. Það er glatt á hjalla í Miklabæjarkirkju á miðvikudagskvöldum,“ segir hún.

Kórinn hefur æft einu sinni í viku frá áramótum en upp á síðkastið segir Helga Rós þó hafa verið haldnar aukaæfingar þannig að allt smelli saman fyrir sumardaginn fyrsta.

Fleiri fréttir