Skagfirskir nemendur FNV fá húsaleigubætur

Á fundi byggðaráðs Skagafjarðar í gær var lögð fram tillaga um að þeim nemendum sem eru með lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði, stunda nám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og búa á heimavist skólans verði greiddar húsaleigubætur samkvæmt sömu reglum og öðrum framhaldsskólanemendum úr sveitarfélaginu er greitt eftir.

Er þetta gert þrátt fyrir að enn sé beðið niðurstöðu um þátttöku Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.  Gildir ákvörðun þessi fyrir tímabilið janúar-maí 2012.

Fleiri fréttir