Skagfirskur forsetaframbjóðandi

Hannes Bjarnason frá Eyhildarholti í Skagafirði hefur ákveðið að fara í framboð til embættis forseta Íslands og freista þess í næstu forsetakosningum að fá að leiða þjóðina sem trúnaðarmaður hennar og endurbyggja traust í samfélaginu.

Hannes Bjarnason er fæddur á Sauðárkróki þann 25. apríl 1971, uppalinn í Eyhildarholti í Skagafirði, sonur hjónanna Bjarna Gíslasonar skólastjóra og bónda í Eyhildarholti, og Salbjargar Márusdóttur húsmóður og  kennara. Í Feyki í dag segir Hannes frá sjálfum sér og ástæðu þess að hann ákvað að fara í framboði til embættis forseta Íslands. Hann segir ástandið í samfélaginu hafi hreyft við sér og hefur látið sig það varða.

-Ég vil leggja hönd á plóg, leggja mitt að mörkum til að bæta samfélagið sem ól mig. Þess vegna býð ég mig fram í kjör til forseta Íslands og tel mig hafa burði til að bera embættið inn í framtíðina, segir Hannes en hann telur að forseti Íslands eigi að notfæra sér þann rétt sem honum er veittur til að hlúa að lýðræðinu.

-Það er vandasamt verk og verða bæði kjarkur og þor að vera til staðar ef vel á að vinnast. Kjarkur og þor til að fylgja eigin sannfæringu og þannig að vera trúnaðarmaður þjóðarinnar. Það er verkefni sem ég vil standa vörð um.

Opnuð hefur verið heimasíða með upplýsingum um framboðið á http://jaforseti.is

Fleiri fréttir