Skelfilegar myndir af tófubitnu fé í fannferginu
Feyki hefur borist myndir af lömbum sem tófur bókstaflega átu lifandi að mati bænda sem að komu en þau voru föst í snjó í Hamraheiðinni neðan og sunnan við Mælifellshnjúk í Skagafirði. Þar má sjá að tófur hafa étið andlitin af lömbunum meðan þau gátu sig hvergi hreyft og einnig var búið að éta annað lærið af einu lambinu meðan það var lifandi.
Hér er andlitið af einu lambinu.
Guðmundur Hjálmarsson og Sæmundur Sæmundsson voru við leit á snjósleðum síðustu tvo daga ásamt fleira fólki sem var ýmist gangandi eða á fjórhjóli á beltum. Einnig hafa bændur á svæðinu verið við leit og björgun sauðfjár og hrossa.
Hér hefur lærið farið í tófukjaftinn.
„Talsvert hefur fundist af dauðu fé á svæðinu en ekki eru öll kurl komin til grafar hvað það varðar því mjög mikill snjór er í öllum giljum og skorningum bæði í Hamraheiðinni og á Mælifellsdal. Þetta fé hefur ýmist drepist í fönn eða krapaelg í lækjum og ám, að ekki sé minnst á fórnalömb tófunnar sem Melrakkasetur Íslands vill að gerð verði að Þjóðardýri Íslands, meðal annars vegna þess hve hófsöm hún er... dæmi nú hver fyrir sig. Umhverfisráðherra væri hollast að horfa vandlega á þessar myndir næst þegar hún neitar að viðurkenna stórfjölgun tófunnar á öllum landssvæðum, nema kannski við Mývatn þar sem fólk hefur staðið vaktina gegn vörgum af meiri alvöru en aðrir, hvort heldur þeir eru fiðraðir, á fjórum fótum eða sitjandi við skrifborð í Umhverfisráðuneytinu,“ segir einn leitarmanna.
Myndirnar tók Sæmundur Sæmundsson.