Skemmtiferðin kemur við í Miðgarði á morgun - allir hvattir til að mæta

Snorri Már Snorrason ætlar að hjóla hringinn í kring um landið í júní. Hann ákvað að leggja í þetta ferðalag sem hann kallar „Skemmtiferðin, þín hreyfing – þinn styrkur“ til að minna á gildi líkamsræktar en hann greindist með Parkinson-sjúkdóminn fyrir átta árum. Snorri verður staddur í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð á morgun, þriðjudaginn 5. júní, kl. 17 og eru allir hvattir til að koma í kaffi og taka á móti Snorra þegar hann hjólar í hlað.  

 „Vaknaði í dag kl. 6 af gömlum vana og er tilbúinn í næstu dagleið. Skrokkurinn er í góðu lagi eftir að hafa hjólað 110km í gærdag. Bjarni Torfi ætlar að hjóla með mér í Hrútafjörðinn í dag. Þetta verður 100-110m dagur með skemmtilegri áskorun þar sem fyrstu 70 km eru upp misbrattar brekkur. Við klárum þessar brekkur vonandi fyrir 15 í dag. Mér sýnist vera auðvelt að fylgjast með okkur á veðurkortinu því við verðum þar sem vindurinn blæs á móti,“ segir Snorri á facebook-síðu sinni í morgun en hann lagði af stað í ferð sína í gær, 3. júní og ætlar að loka hringnum þann 23. júní.

„Ég er ekki að safna áheitum í formi peninga heldur loforðum ykkar um að þið hreyfið ykkur sjálf. Styrkið mig í minni skemmtiferð með því að hreyfa ykkur meira en þið eruð vön,“ segir hann á heimasíðu sinni.

Við ætlum nokkur frá Parkinsonsamtökunum á Íslandi að koma að sunnan og hvetja Snorra áfram,“ segir Hrönn Ágústsdóttir ráðgjafi hjá samtökunum í samtali við Feyki. Einnig verður haft samband við þá tíu til tólf einstaklinga í Skagafirði sem eru með Parkinson og þeir hvattir til að láta sjá sig í Miðgarði.

„Það er svo gaman að sjá hve framtakinu hefur verið vel tekið. Snorri er öðrum mikil fyrirmynd. Hann einblínir alltaf á það sem hann getur en ekki það sem hann getur ekki,“ segir Hrönn.

Snorri ætlar sér að hjóla um 100 kílómetra á dag og auk þess að hitta hann og hvetja hann til dáða í Miðgarði á morgun má fylgja honum eftir á facebook-síðu hans.

 „Yrði aldrei var við þetta ef ég gengi alltaf á þúfum“

Óskar Konráðsson frá Sauðárkróki ætlar að taka á móti Snorra og um leið að veita málstaðnum lið. Hann greindist með Parkinson fyrir 20 árum síðan og segir hrörnunarsjúkdóminn hafa smátt og smátt unnið á sér.

„Sjúkdómurinn fer rólega af stað en það sem fer er meðal annars lyktarskyn, skriftin smækkar og röddin minnkar, auk þess fylgir þessu að vera svolítið óstöðugur á fótunum,“ segir Óskar.

„Læknir sagði eitt sinn við mig að ef ég gengi alltaf á þúfum þá yrði ég aldrei var við þetta,“ segir hann og brosir.

Hann rifjar upp þegar hann fann fyrst fyrir einkennum sjúkdómsins, þá 47 ára að aldri, og var hann að vinna í Hampiðjunni í Reykjavík. „Ég þurfti að fara á annan stað í húsinu en þá var ekkert sjálfgefið að labba af stað, ég þurfti að einbeita mér að því,“ segir Óskar.

Engin lyf eru til við Parkinson og samkvæmt Óskari hafa litlar breytingar hafa átt sér stað í þeim efnum síðan hann var greindur með sjúkdóminn fyrir 20 árum síðan. Þá er einungis hægt að halda einkennum sjúkdómsins í skefjum með lyfjagjöf.

Parkinson –sjúkdómurinn er, að sögn Óskars, vegna skorts á boðefnum í ákveðnum heilafrumum sem stjórna hreyfingum. „Það deyr enginn úr þessu en deyja þó með þetta,“ segir Óskar.

Fleiri fréttir