Skemmtileg hefð í Varmahlíðarskóla

Tréð sótt og allir kátir. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI.iS
Tréð sótt og allir kátir. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI.iS
Það er árleg hefð í Varmahlíðarskóla að vera með jólatré fyrir framan skólann og að nemendur í 4. bekk sæki það og það hefur þegar verið gert. Nemendur örkuðu af stað með umsjónarkennurum og húsverði, fundu gott tré, söguðu það niður og báru það heim í skólann.

 

Næstkomandi fimmtudag verður svo kveikt á jólatrénu að viðstöddum öllum nemendum og starfsfólki skólans.

Sjá má fleiri myndir frá þessu framtaki á vef skólans >

https://www.varmahlidarskoli.is/is/forsida/frettir/jolatre-vid-skolann

Fleiri fréttir