Skemmtileg heimsókn í Arnargerði

Hólanemar voru með fræðslukvöld í reiðhöllinni í Arnargerði á Blönduósi sl. miðvikudagskvöld en samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Neista var mjög góð þátttaka og góður rómur gerður af heimsókninni.

Það voru þau Bjarni Sveinsson, Carrie Lyons Brandt og Sara Pesenacker sem önnuðust kynninguna og voru með fyrirlestur og sýnikennslu í Reiðhöllinni. Þar fóru þau yfir hvernig mætti notfæra sér fimiþjálfun til þess að bæta gangtegundir hestsins.

„Þau svifu um salinn með leikandi létta hestana og sögðu frá þjálfuninni í leiðinni sem komst vel til skila. Virkilega skemmtileg og fræðandi heimsókn, kærar þakkir fyrir,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri myndir má skoða á heimasíðu Neista.

 

Fleiri fréttir