Skíðamenn slútta

Fyrir skömmu hélt skíðadeild Tindastóls uppskeruhátíð sína eftir glæsilegt vetrarstarf en um fimmtíu börn og unglingar úr Skagafirði og Húnavatnssýslu hafa æft stíft í Tindastóli í vetur. Þjálfarar voru þeir Björgvin Björgvinsson, Gunnar Björn Rögnvaldsson, Snjólaug Jónsdóttir, Sveinn Sverrisson og Vernharð Guðnason.

Mikil stemning var á hátíðinni eins og sést á meðfylgjandi myndum sem Jóhanna Pétursdóttir (Jóka) tók.

.

Fleiri fréttir