Skíðasvæðið í Tindastóli opið í dag
Skíðasvæðið Tindastóll verður opið í dag frá kl. 11 til 16. „Það er þónokkuð af ónotuðum snjó í Tindastólnum og um að gera að koma og nota hann aðeins,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Í fjallinu er svo gott sem logn, eða 2.4 m/sek, og þriggja stiga frost.
